| EN|ES|IT|IS|CY

DIGIMUSE ENTER NEWS

News

Kynning á DIGIMUSE ENTER á ráðstefnunni „Arte tra mecenatismo e nuove tecnologie“ á Ítalíu.

03/06/2026
Kynning á DIGIMUSE ENTER  á ráðstefnunni „Arte tra mecenatismo e nuove tecnologie“ á Ítalíu.

Evrópuverkefnið DIGIMUSE ENTER, Digital Tools for the Inclusive Accessibility to Cultural Heritage, var kynnt á ráðstefnunni „Arte tra mecenatismo e nuove tecnologie“ sem haldin var í Auditorium Petruzzi, í Pescara á Ítalíu, þann 30. maí 2026.

Á ráðstefnunni kynnti Ermanno de Pompeis, safnstjóri Museo delle Genti d'Abruzzo á Ítalíu, framgang verkefnisins, helsta árangur þess til þessa og framtíðarsýn samstarfsaðilanna. 

DIGIMUSE ENTER er styrkt af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins og hefur það að markmiði að styðja við stafræna umbreytingu hjá smærri menningarstofnunum um alla Evrópu, með áherslu á aukið aðgengi og þátttöku fjöldans.
Í erindi sínu fjallaði de Pompeis um eina af stærstu áskorunum sem menningargeirinn stendur frammi fyrir í dag, þ.e. að draga úr því stafræna misræmi sem til staðar er ennþá e milli bæði smærri menningarstofnana og þeirra stærri, og betur fjármögnuðu. Hann lagði einnig áherslu á mikilvægi þess að tryggja öllum jafnt aðgengi að menningararfi og menningarupplifunum.

DIGIMUSE ENTER byggir á þeim árangri sem náðist hjá fyrra verkefni, DIGIMUSE, og sameinar átta samstarfsaðila frá sjö Evrópulöndum. Saman vinna þeir að því að efla stafræna nýsköpun í menningargeiranum og bæta aðgengi almennings að menningarupplifunum.

Markmið verkefnisins
Á kynningunni voru helstu markmið verkefnisins dregin fram og eru þau þessi:

  • Að efla stafræna færni starfsfólks í menningargeiranum, til að stuðla að auknu aðgengi og meiri þátttöku í menningarstarfi.
  • Að minnka gjánna á milli smærri og stærri menningarstofnana hvað varðar aðgang að stafrænum lausnum og nýtingu þeirra.
  • Að þróa námsleiðir sem byggja á evrópska stafræna hæfnirammanum DigComp 2.2.
  • Að stuðla að notkun evrópskra örvottorða (micro-credentials), sem veita viðurkennda og yfirfæranlega staðfestingu að loknum námsleiðum.
  • Að stækka og efla DIGIMUSE-samstarfsnetið. 

 
Árangur verkefnisins til þessa

Þótt verkefnið sé aðeins um það bil hálfnað hefur það þegar skilað umtalsverðum árangri eins og sjá má hér:

  • 267 nýir hagsmunaaðilar, víðs vegar um Evrópu, hafa tengst verkefninu. 
  • 17 dæmi um góða starfshætti hafa verið greind og metin, með það að markmiði að efla aðgengi og þátttöku með hjálp stafrænna lausna.
  • Yfir 100 sérfræðingar á sviði menningararfs hafa tekið þátt í verkefninu.
  • Haldnar hafa verið 8 samvinnusmiðjur þar sem tengdar þjálfun og nýjar lausnir voru kortlagðar.
  • Þróuð hafa verið 4 opin og gjaldfrjáls námskeið fyrir starfsfólk í menningargeiranum eða sem hér segir:
    o    Stafræn færni við að auka aðgengi og þátttöku
    o    Gervigreind til að efla aðgengilega og inngildandi menningarmiðlun
    o    Stefnumótun, með áherslu á aðgengi, fyrir stafræna nýsköpun 
    o    Evrópsk tækifæri á sviði stafrænnar þróunar

Kynning DIGIMUSE ENTER á ráðstefnunni skapaði mikilvægt tækifæri til að miðla reynslu og þekkingu samstarfsaðilanna til fagfólks í menningargeiranum, stofnana og almennings. Jafnframt skapaði hún vettvang til umræðu um það hvernig stafrænar lausnir geta stuðlað að því að gera menningararf aðgengilegri, opnari og þátttökumiðaðri fyrir alla.
 

Nánari upplýsingar:
Vefsíða verkefnisins: www.digimuse.eu
Instagram: DIGIMUSE ENTER
Facebook: DIGIMUSE Project
Netfang: digimuse@gentidabruzzo.it

Chat

DIGIMUSE Assistant