| EN|ES|IT|IS|CY

DIGIMUSE ENTER NEWS

News

DIGIMUSE ENTER lauk námskeiðsröð sinni sem kallast Þjálfun Þjálfara (Train-the-Trainer) með góðum árangri, þar sem fjallað var um styrktarmöguleika ESB og stefnumótandi samstarf fyrir við stafræna þróun í menningargeiranum.

21/05/2026
DIGIMUSE ENTER lauk námskeiðsröð sinni sem kallast Þjálfun Þjálfara (Train-the-Trainer) með góðum árangri, þar sem fjallað var um styrktarmöguleika ESB og stefnumótandi samstarf fyrir  við stafræna þróun í menningargeiranum.

Þriðja og síðasta Þjálfun Þjálfara - námskeiðið í evrópska verkefninu DIGIMUSE ENTER, fór fram á dögunum með góðum árangri. Að þessu sinni var lögð áhersla á styrktarmöguleika Evrópusambandsins við stafræna þróun í menningargeiranum og auk uppbyggingar og færni í stefnumótandi verkefnastjórnun.

Námskeiðið var haldið á vegum IHF (Institut de Haute Formation aux Politiques Communautaires) og komu þar saman starfsmenn nokkurra samstarfsaðila verkefnisins. Markmiðið var að efla getu þeirra til að greina evrópsk fjármögnunartækifæri, byggja upp alþjóðlegt samstarf og þróa samkeppnishæfar verkefnatillögur.

Fundurinn var sem sagt hluti af Þjálfun Þjálfara áætlun DIGIMUSE ENTER verkefnisins, þar sem samstarfsaðilar verkefnisins miðla þekkingu og færni til menningarstofnana innan samstarfsnetsins. Hugsað til að stofnanirnar geti síðar þjálfað annað fagfólk í menningargeiranum. Námskeiðin hafa verið haldin með stuðningi frá DIGIMUSE ENTER Digital Warehouse, sem jafnframt er verið að prófa og staðfesta með virkri þátttöku notenda.

Á námskeiðinu kynntu þátttakendur sér þær helstu evrópsku áætlanirnar sem styðja við stafræna umbreytingu og nýsköpun í menningargeiranum, þar á meðal Creative Europe, Erasmus+ og Digital Europe. Þeir fengu hagnýtar leiðbeiningar um hvernig hægt er að finna hentugustu fjármögnunartækifærin fyrir eigin stofnun og jafnframt að samræma verkefnahugmyndir við forgangsmarkmið Evrópusambandsins.

Sérstök áhersla var lögð á hagnýta þætti evrópskrar verkefnaþróunar. Þar má nefna leit að auglýstum styrkjum á Funding & Tenders-gátt Evrópusambandsins, skilning á hæfisskilyrðum og matsviðmiðum, mótun SMART-markmiða, uppbyggingu árangursríks samstarfs og hönnun sjálfbærra verkefna sem skila langtímaáhrifum.

Einnig var fjallað um mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í evrópskum verkefnum. Þátttakendur fengu verkfæri og upplýsingar um aðferðir til að stækka faglegt tengslanet sitt og auka þátttöku í evrópskum verkefnum sem stuðla að stafrænni umbreytingu menningararfs.

Með þessari námsleið styrktu þátttakendur mikilvæga tæknilega þekkingu og færni í verkefnaþróun, til að takast á við áskoranir stafrænnar þróunar og stuðla að aðgengilegri og inngildandi miðlun menningararfs, í samræmi við markmið DIGIMUSE ENTER verkefnisins.

Öll fjögur námskeiðin sem þróuð voru innan verkefnisins eru nú aðgengileg á netinu án endurgjalds. Þau eru ætluð fagfólki í menningargeiranum, sérfræðingum á sviði menningararfs, sem og söfnum og öðrum stofnunum sem hafa áhuga á stafrænni þróun, aðgengi og nýsköpun. 

Námskeiðin má nálgast hér: https://www.digimuse.eu/training.php

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér:
Vefsíða: https://digimuseenter.eu
Facebook: https://www.facebook.com/DIGIMUSEENTER
Instagram: https://www.instagram.com/digimuseenter
Netfang: digimuse@gentidabruzzo.it

Chat

DIGIMUSE Assistant