IWS (Internet Web Solutions) stóð fyrir tveimur kynningarviðburðum innan DIGIMUSE ENTER verkefnisins þar sem saman komu þátttakendur með áhuga á stafrænni nýsköpun, menningararfi, söfnum og menntun. Viðburðirnir gáfu tækifæri til að kynna markmið verkefnisins, árangur þess og frítt fræðsluefni sem þróað hefur verið til að styðja við stafræna þróun safna og annarra menningarstofnanna.
Á báðum viðburðunum kynnti IWS markmið DIGIMUSE ENTER verkefnisins,þ.e. um að efla stafræna færni safnastarfsfólks, kennara, nemenda og menningarstofnanna. Markmiðið er að styðja þessa hópa við að nýta stafræna tækni á markvissan hátt til að stuðla að áhugaverðari, aðgengilegri og fjölbreyttari upplifun gesta.
Þátttakendum voru kynntar helstu niðurstöður verkefnisins hingað til, með sérstakri áherslu á fjögur gjaldfrjáls námskeið á netinu. Þau veita hagnýta þekkingu á því hvernig nýta má stafræn verkfæri í safnastarfi. Námskeiðin eru öllum opin og aðgengileg þeim sem vilja efla stafræna færni sína á sviði safna og menningarmiðlunar.
![]() |
![]() |
Mikilvægur hluti viðburðanna var kynning á góðum starfsvenjum safna. Þar má finna dæmi um hvernig söfn í Evrópu og víðar hafa nýtt stafræna tækni til að auka þátttöku gesta, bæta aðgengi og auðga upplifun þeirra. Dæmin sýna hvernig stafræn nýsköpun getur gert söfn gagnvirkari og aðgengilegri og höfðað þar með til fjölbreyttari hópa.
Þátttakendur kynntu sér einnig Best Practice Analysis Matrix greiningarrammann sem þróaður var innan verkefnisins til að meta góðar starfsvenjur út frá nokkrum lykilþáttum. Þar á meðal eru þar styrkleikar og veikleikar, yfirfærslugildi, kröfur við innleiðingu og kostnaðarhagkvæmni. Ramminn veitir söfnum og öðrum menningarstofnunum hagnýta leiðsögn við að innleiða árangursríkar stafrænar lausnir og nýta tiltækt fjármagn á skilvirkan hátt, líka þegar lítið fjármagn er til ráðstöfunar.
Önnur mikilvæg niðurstaða verkefnisins sem kynnt var á viðburðunum var DigComp Competence Matrix. Í þeim ramma er gerð grein fyrir þeirri stafrænu færni sem unnið er með í námskeiðum DIGIMUSE ENTER. Hann styður við markvissa uppbyggingu þeirrar þekkingar og færni sem þátttakendur þurfa til að nýta stafræna tækni í safna- og menningarstarfi. Námsmarkmiðin taka jafnframt mið af evrópska hæfnirammanum um stafræna hæfni DigComp.
Á viðburðunum var einnig OER-vefur DIGIMUSE ENTER kynntur. Þar er hægt að nálgast allt efni verkefnisins frítt - á einum stað, allan sólarhringinn. Notendur geta þannig farið í gegnum allt námskeiðsefnið á eigin hraða. Einnig er hægt að hlaða niður námsefninu á bæði sniðum PowerPoint og Word forrita. Á þann hátt er hægt að nota efnið án nettengingar, aðlaga það að fræðslustarfi eða nýta innan eigin stofnunar.
Með þessum kynningar- og miðlunaraðgerðum leggur Internet Web Solutions áherslu á að niðurstöður verkefnisins verði áfram aðgengilegar nemendum, kennurum, safnastarfsfólki og stofnunum um alla Evrópu. Öll úrræði DIGIMUSE ENTER verkefnisins eru aðgengileg án endurgjalds á OER-vef verkefnisins. Þannig nýtast niðurstöður þess áfram eftir að verkefninu sjálfu lýkur og styðja við áframhaldandi stafræna þróun safna og menningarstofnanna.
Nánari upplýsingar um DIGIMUSE ENTER verkefnið má finna á vefsíðunni: www.digimuse.eu
Fylgið DIGIMUSE ENTER á Facebook og Instagram:
Facebook: DIGIMUSE á Facebook
Instagram: DIGIMUSE ENTER á Instagram
Hafið samband við okkur í tölvupósti: digimuseproject@gmail.com