| EN|ES|IT|IS|CY

DIGIMUSE ENTER NEWS

News

Frá stafrænni þátttöku til gervigreindar: Tvö DIGIMUSE ENTER námskeið á vegum IWS

22/07/2026
Frá stafrænni þátttöku til gervigreindar: Tvö DIGIMUSE ENTER námskeið á vegum IWS

IWS (Internet Web Solutions) stóð fyrir tveimur staðnámskeiðum innan DIGIMUSE ENTER verkefnisins. Markmið námskeiðanna var að efla stafræna færni starfsfólks safna, starfsfólks sem starfar á sviði menningarmála, kennara, nemenda og annarra sem hafa áhuga á að nýta stafræna nýsköpun til að auka aðgengi að menningararfi og þátttöku í menningarlífi.

Fyrra námskeiðið, Digital Skills for Inclusion: Tools & Techniques for Small Museums that Want to Reach Everyone, voru kynnt til sögunnar hagnýt stafræn verkfæri og aðferðir sem lítil söfn og menningarstofnanir geta nýtt til að auka aðgengi til fjölbreyttra hópa. Þátttakendur kynntu sér hvernig stafræn tækni getur bætt aðgengi, aukið þátttöku gesta og dregið úr hindrunum til að auka möguleika á fullri þatttöku fólks í menningarstarfi.  Áhersla var lögð á hagkvæmar lausnir sem auðvelt er að innleiða í söfnum og menningarstofnunum og geta hjálpað söfnum að verða aðgengilegri, gagnvirkari og opnari fyrir fjölbreyttum hópum.

Seinna námskeiðið, Smart Culture: Using AI for Small Museums and Inclusive Digital Heritage, fjallaði um vaxandi hlutverk gervigreindar á sviði menningararfs. Þátttakendur kynntu sér hvernig verkfæri sem byggja á gervigreind geta nýst við gerð efnis, í samskiptum við gesti, við miðlun, aðgengi og að lokum við stafræna kynningu safnkosts. Einnig var fjallað um ábyrga og siðferðilega notkun gervigreindar og hvernig nýta má nýja tækni með áherslu á áreiðanleika, gagnsæi og þátttöku.

Bæði námskeiðin sameinuðu fræðilega þekkingu og hagnýt dæmi. Þátttakendur fengu þannig tækifæri til að íhuga hvernig þeir gætu nýtt nýja þekkingu og færni í eigin starfi.
Námskeiðin eru hluti af fræðsluáætlun DIGIMUSE ENTER, sem samanstendur af fjórum ókeypis námskeiðum á netinu og hafa verið þróuð til að styðja við stafræna þróun safna og menningarstofnana. Allt námsefnið er aðgengilegt á OER-vef verkefnisins. Þar geta notendur nálgast námskeiðin án endurgjalds hvenær sem er og hlaðið niður námsefninu á PowerPoint- og Word-sniði til sjálfsnáms eða fræðslustarfs.

Nánari upplýsingar um DIGIMUSE ENTER verkefnið má finna á vefsíðu verkefnisins: www.digimuse.eu

Fylgið DIGIMUSE ENTER á Facebook og Instagram:
Facebook: DIGIMUSE á Facebook
Instagram: DIGIMUSE ENTER á Instagram
Hafið samband við okkur í tölvupósti: digimuseproject@gmail.com
 

Chat

DIGIMUSE Assistant